|
Sjá nokkrar
meginniðurstöður - Úr lokaskýrslu
Fréttatilkynning í nóvember 2005
NámUST verkefnið (nám með upplýsinga-
og samskiptatækni ) fékk styrk úr markáætlun um upplýsingatækni á árunum
2002-2005. Tilgangurinn rannsóknarinnar var að skoða möguleika sem
notkun upplýsinga- og samskiptatækni opnar fyrir nám og kennslu. Hafðar
voru að leiðarljósi rannsóknir og kenningar um nám í þekkingarsamfélagi
nútímans. Kannað var hvað upplýsingatækni hefur í för með sér fyrir
skóla, skólastjórnendur, kennara og nemendur. Rannsóknin beindist að
fjórum skólastigum frá leikskóla til háskóla.
Þátttakendur komu úr þremur háskólum,
Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík
en rannsóknin var hýst hjá Rannsóknarstofnun KHÍ og verkefnastjóri var
Allyson Macdonald prófessor og fyrrverandi forstöðumaður RKHÍ. Fjöldi
greina og skýrsla hefur komið út þar sem niðurstöður eru kynntar og
haldið hefur verið úti öflugum vef þar sem niðurstöður hafa verið birtar
jafnóðum sjá http://namust.khi.is
Jafnframt hafa fimm meistaraprófsnemar við KHÍ lokið rannsóknum í
tengslum við verkefnið og eitt doktorsverkefni við HÍ er í vinnslu.
Niðurstöður benda til að þrátt fyrir að
aðalnámskrár kveði á um markvissa notkun upplýsinga- og samskiptatækni í
skólum er misjafnt hvernig framkvæmdin er í skólunum. Notkun upplýsinga-
og samskiptatækni í námi og kennslu gerir kröfur um markvissa stefnu af
hálfu skólayfirvalda, stuðning skólastjórnenda, sveigjanleika í
skipulagi skólastarfs bæði hvað varðar tíma og rými, færni kennara og
greiðan aðgang að vél- og hugbúnaði. Það sem vekur sérstaka athygli er
að börn og unglingar afla sér töluverðar færni í notkun tækninnar utan
skólans og skólinn virðist ekki taka mið af því í sínu skipulagi og
námsframboði.
Á háskólastigi hefur vaxandi notkun
upplýsinga- og samskiptatækni haft í för með sér sívaxandi framboð
fjarnáms og aukna tækninotkun í öllu háskólanámi. Þrátt fyrir það er
tæknin oft notuð til að styðja hefðbundna kennsluhætti með áherslu á að
bæta miðlun og framsetningu verkefna. Í fjarnámi má sjá merki um
breyttar áherslur þar sem myndun námssamfélaga er talin mikilvæg og lögð
er áhersla á gildi samræðna í námi. Netið er greinilega orðið öflugt
tæki nemenda til að afla upplýsinga, eiga samskipti og koma á framfæri
efni.
Almennt má segja að tæknin sé notuð á
skilvirkan hátt í skólum til að koma upplýsingum á framfæri eða afla
upplýsinga. Möguleikar tækninnar til að efla samskipti sem lið í námi og
kennslu er styttra á veg komin einkum ef tekið er mið af hve samskipti
eru stór þáttur í notkun upplýsinga- og samskiptatækni utan skóla og í
samfélaginu almennt.
Kynning á niðurstöðunum opnar möguleika
fyrir upplýsta umræðu um stefnumótun og hvað þarf að skoða sérstaklega
þegar stefnt er að því að efla þátt upplýsinga- og samskiptatækni í námi
og skólastarfi.
Verkefnið er að
hluta til styrkt úr Markáætlun RANNÍS um upplýsingatækni og umhverfismál.
Í stýrihóp eru: Allyson Macdonald formaður,
Kristín Norðdahl, Samuel Lefever, Sólveig Jakobsdóttir og Þuríður
Jóhannsdóttir.
Þessir hafa tekið þátt í verkefninu sem
rannsakendur:
Í stýrihóp
verkefnisins eru: M.
Allyson Macdonald (verkefnastjóri/formaður stýrihóps), Kristín Norðdahl, Michael Dal, Sigurjón Mýrdal, Sólveig
Í Í stýrihóp
verkefnisins frá apríl 2004 eru: M.
AllysonMacdonald |